Skráning hafin í GEGT1337:* online #2 - 2010
Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í GEGT1337:* online #2 - 2010.
Skráning Skráning liða verður opin í eina viku (til 23. október 2010) og engin takmörk eru fyrir fjölda liða. Eftir að skráningu lýkur er enginn möguleiki á að koma liði inn í keppnina.
Skráning keppenda verður opin út allt mótið, en reglur munu gilda um leikmannaskipti.
ATH! Nauðsynlegt er að hver einasti keppandi skrái sig og sitt Steam ID á síðunni til að vera löglegur í mótinu.
Keppnisfyrirkomulag Keppnisfyrirkomulag verður þannig að skráðum liðum verður raðað eftir styrkleika og dregið í fjóra riðla út frá því. Að riðlum loknum verður svo 8 liða double elimination.
Dagsetningar á leikjum verða ákveðnar þegar skráningu lýkur og verða í samræmi við liðafjölda.
Reglur Reglur er hægt að skoða hér: http://1337.is/index.php?p=rules
Verðlaun Þar sem engir styrktaraðilar hafa fengist verða sömu verðlaun og í síðasta móti:
- verðlaun: ventrilo server í 6 mánuði
- verðlaun: ventrilo server í 3 mánuði
- verðlaun: ventrilo server í 1 mánuð
Spurningar Ef þið hafið einhverjar spurningar, komið þá við á #gegt1337 rásinni á IRCnet og spyrjið.
21.10.2010 - 15:37